Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Uppbygging í Örkinni

Hvítasunnukirkjunni á Íslandi á mótstað í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Síðust áratugi hefur verið mikil uppbygging á svæðinu og meðal annars reist risa stór samkomuhús sem í daglegu tali kallast Örkin.  Nú er unnið hörðum höndum að því að klára Örkina og er vonast til þess að sú vinna geti klárast á allra næstu árum. Síðustu helgi hvers mánaðar (utan desember) eru vinnuhelgar þar sem allir þeir sem vilja geta mætt og lagt hönd á plóginn. Á síðustu vinnuhelgi mættu um 13 manns og vannst mikið.

Boðið er upp á gistingu og mat á staðnum fyrir sjálfboðaliða.
Næsta vinnuhelgi verður dagana 23. - 25. nóvember hægt er að smella hér til að fá nánari upplýsingar.


No Comments


Recent

Archive

Categories

Tags