Alfanámskeið
Alfa er 10 vikna námskeið sem fjallar um kristna trú á
aðgengilegan og skemmtilegan hátt þar sem tækifæri gefst til
að skoða stóru spurningar lífsins út frá kristnu sjónarhorni.
Hist er einu sinni í viku í u.þ.b. 2 klukkustundir í senn.
Þúsundir Íslendinga hafa sótt Alfanámskeið, verið mjög ánægðir með
námskeiðið og mælt með því við aðra.
Námskeiðsgjaldið er 8500 kr. Alfahelgin verður 23.-25. okt. í
Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Greitt er sérstaklega fyrir þá ferð en
kostnaði haldið í lágmarki.
HVERNIG VIRKAR ALFA?
18:00 – 18:30 Matur - samfélag og spjall
Kennsla
18:30 - 19:00 Kennsla um viðfangsefni kvöldsins.
Hverju Alfakvöldi fylgir rúmlega tuttugu mínútna kennsla á
myndbandi. Kennslurnar eru til þess gerðar að vekja upp fleiri spurningar
en þær svara. Þær fjalla um stóru málefnin tengd trúnni og
útskýra grunnatriði kristinnar trúar. Þetta eru spurningar eins og „Hver er
Jesús?“ og „Hvernig getum við átt trú?“.
Umræður
19:00 – 20:00 Umræður um viðfangsefni kvöldsins.
Þetta er hápunktur kvöldsins. Eftir kennsluna er nemendum
skipt í minni hópa þar sem hópstjóri leiðir umræðuna. Hér
getur fólk deilt hugsunum og vangaveltum um trúna og
lífið og heyrt hvað aðrir hafa að segja. Öllum er frjálst að taka
virkan þátt í umræðunum en það er líka í góðu lagi að hlusta
og velta hlutunum fyrir sér án þess að tjá sig.
HÉR má skrá sig á næsta Alfanámskeið sem hefst 22. september.