Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Velkomin vertu, vetrarperlan fríð

1. Velkomin vertu,
vetrarperlan fríð,
síblessuð sértu,
signuð jólatíð.
Guðs frá gæsku hendi,
gulli dýrra hnoss.
Þökk sé þeim, er sendi
þig, svo gleðjir oss.
Þú oss friðar boðskap ber,
birtir grið og náð oss tér,
læknar sviða, sárt er sker,
súta léttir kross.

2. Velkominn vertu,
vor Immanúel,
ástgjöf sú ertu,
allt sem bætir vel
böl, er hjörtu hrjáir,
haldin eymd og synd,
hvíld, er þreyta þjáir,
þyrstum svalalind.
Jesús góði, þökk sé þér,
þig að bróður fengum vér,
þitt oss blóðið lífgjöf lér,
ljóminn Guðs og mynd.

Helgi Hálfdánarson

Hljóðdæmi