Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Þá nýfæddur Jesús

1. Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
á jólunum fyrstu, var dýrðlegt að sjá.
Þá sveimuðu englar frá himninum hans,
því hann var nú fæddur í líkingu manns.

2. Þeir sungu ,,hallelúja" með hátíðarbrag:
,,Nú hlotnast guðsbörnum friður í dag."
Og fagnandi hirðarnir fengu að sjá
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.

3. Ég bið þig, ó, Drottinn, að dvelja mér hjá,
að dýrðina þína ég fái að sjá.
Ó, blessaðu, Jesú, öll börnin þín hér,
að búa þau fái á himnunum með þér.

Höfundur óþekktur – Björgvin Jörgensson

Hljóðdæmi