Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Sjá, ljós er þar yfir

1. Sjá, ljós er þar yfir, sem lagður var nár.
Hann lifir, hann lifir, nú ræst hafa spár.
Hann rís upp í ljóma, nú lífið er veitt
og lausn úr þeim dróma, sem mannkyn bar þreytt.
Hvert innsigli´ er brotið og bjargi velt frá,
á burt eru verðir, því hræðsla greip þá,
og heljar hlið skjálfa. Hallelúja.

2. Ei myrkrið vann ljósið, þótt langt væri stríð,
nei, ljóssins varð hrósið um eilífa tíð.
Burt hrelling er flúin, því himneska von
oss hefir veitt trúin á Guðs einkason.
,,Hví leitið þér, konur, svo harmþrungnar hér?
Ei hann, sem nú lifir, hjá framliðnum er,
upp herrann er risinn.“ Hallelúja.

3. Til himneskrar gleði nú gröfin er hlið,
ei grafar á beði er seinasta mið.
Þér höfuð, sem niður af hryggð voruð sveigð,
upp hefjið nú yður og verið ei beygð.
Kom, hjörð, til þíns hirðis og leiða þig lát,
hann lifir, hann lifir og enn hefur gát
frá himnum á sínum. Hallelúja.

4. Ei haggast hans kirkja, þótt hret geisi stríð,
hans heilög orð styrkja gegn óvinum lýð.
Enn víða´ eru´ á ferðum hans vottar um heim,
þótt viðjum og sverðum sé otað mót þeim,
og vitna´ um hinn heilaga´, er hreif oss úr neyð,
um hann, sem á krossinum deyddi vorn deyð,
um hertoga lífsins. Hallelúja.

5. Þér kristnir, hví grátið og kvíðið þér enn?
Af kveinstöfum látið, þér friðkeyptu menn.
Það jörðin brátt tekur, af jörðu sem er,
en Jesús það vekur til dýrðar hjá sér.
Hann vitjar síns akurs á uppskeru tíð,
og illgresið skilur frá hveitinu´ um síð.
Hann hveiti sitt þekkir. Hallelúja!

Helgi Hálfdánarson.

Hljóðdæmi