Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Ó, þá náð að eiga Jesú

1. Ó, þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu´ í Drottins skaut!
Ó, það slys því hnossi að hafna,
hvílíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.

2. Eigir þú við böl að búa,
bíðir freistni, sorg og þraut,
óttast ekki, bænin ber oss
beina leið í Drottins skaut.
Hver á betri hjálp í nauðum?
Hver á slíkan vin á braut,
hjartans vin, sem hjartað þekkir?
Höllum oss í Drottins skaut.

3. Ef vér berum harm í hjarta
hryggilega dauðans þraut,
þá hvað helst er herrann Jesús
hjartans fró og líknarskaut.
Vilji bregðast vinir þínir,
verðirðu´ einn á kaldri braut,
flýt þér þá að halla´ og hneigja
höfuð þreytt í Drottins skaut.

Joseph Schriven - Matthías Jochumsson.

Hljóðdæmi