Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Í Betlehem er barn oss fætt

1. Í Betlehem er :,: barn oss fætt, :,:
því fagni gjörvöll Adams ætt. :,: Hallelúja. :,:

2. Það barn oss fæddi :,: fátæk mær. :,:
Hann er þó dýrðar Drottinn skær. :,: Hallelúja. :,:

3. Hann var í jötu :,: lagður lágt, :,:
en ríkir þó á himnum hátt. :,: Hallelúja. :,:

4. Hann vegsömuðu :,: vitringar, :,:
hann tigna himins herskarar. :,: Hallelúja. :,:

5. Þeir boða frelsi´ og :,: frið á jörð, :,:
og blessun Drottins barnahjörð. :,: Hallelúja. :,:

6. Vér undir tökum :,: englasöng, :,:
og nú finnst oss ei nóttin löng. :,: Hallelúja. :,:

7. Vér fögnum komu :,: frelsarans, :,:
vér erum systkin orðin hans. :,: Hallelúja. :,:

8. Hvert fátækt hreysi :,: höll nú er, :,:
því Guð er sjálfur gestur hér. :,: Hallelúja. :,:

9. Í myrkrum ljómar :,: lífsins sól. :,:
Þér Guði sé lof fyr´ gleðileg jól. :,: Hallelúja. :,:

Höfundur óþekktur  - Valdimar Briem.

Hljóðdæmi