Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Hve glaðlega söngurinn

1. Hve glaðlega söngurinn himneski hljómar,
í  himnanna dýrðlega sal.
Og Guðs barnasöngurinn eilífi ómar
hér einnig, sem bergmál í táranna dal.

Kór: Þar gullhörpur óma í Guðs Paradís,
og Guðs englar syngja þar dýrð, lof og prís.

2. Þar dunar sem voldugur vatnanna niður
hinn voldugi söngur hvern dag.
Þar ríkir Guðs elska og eilífur friður,
þeir útvöldu syngja þar fagnaðarlag.

3. En himnesku söngvana syngja þeir einir
í  sælunnar eilífu byggð.
Í lausnarans blóði, sem hér urðu hreinir
og himnanna konungi þjóna með dyggð.

James R. Murray - Sigurbjörn Sveinsson.

Hljóðdæmi