Hvítasunnukirkjan Fíladelfía

Guðs kristni í heimi

1. Guðs kristni í heimi, krjúp við jötu lága.
Sjá, konungur englanna fæddur er.
Himnar og heimar láti lofgjörð hljóma.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

2. Hann ljós er af ljósi, Guð af sönnum Guði,
einn getinn, ei skapaður, sonur er.
Orðið varð hold í hreinnar meyjar skauti.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

3. Sjá, himnarnir opnast, hverfur nætursorti,
og himneskan ljóma af stjörnu ber.
Heilagan lofsöng himinhvolfin óma.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

4. Á Betlehemsvöllum hirðar gættu hjarðar.
Guðs heilagur engill þeim fregn þá ber.
Fæddur í dag er frelsari vor Kristur.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

5. Já, dýrð sé í hæðum Drottni, Guði vorum,
og dýrð sé hans syni, er fæddur er.
Lofsöngvar hljómi. - Himinhvolfin ómi:
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Ó, dýrð í hæstu hæðum.
Guðs heilagi sonur, ó dýrð sé þér.

John F. Wade – Valdimar V. Snævarr

Hljóðdæmi