Kæru börn og foreldrar.
Nú er skráning hafin á barnamót 2010 sem er haldið samhliða Kotmóti í Fljótshlíð um verslunarmannahelgina.
Í ár er yfirskriftin: ,,Ég er Guðsbarn". Við ætlum svo sannarlega að skemmta okkur saman, dansa, syngja, hoppa, skoppa og lofa Guð.
Dagskráin í ár er hlaðin af skemmtilegu efni þar sem börnin fá frábæra kennslu ásamt því að syngja og lofa Guð.
Við minnum á fjöskyldusamveruna á laugardagsmorgninum þar sem allar kynslóðir njóta þess að eiga samverustund saman.
Ekki má gleyma stórglæsilegu KARNIVALI og þar er margt í boði - andlitsmálning, gosdrykkjakast, eplaát, kókosbollur, rjómatertukast og margt fleira.
Mótsgjaldið er 3.500 krónursé greitt fyrir 15. júlí en hækkar í 5.000 eftir það.
Í ár verða einungis pantaðir bolir fyrir þá sem skrá sig fyrir 15. júlí. Til að barnið teljist skráð þarf að greiða fullt mótsgjald sem er 3.500 krónur.
Senda þarf tölvupóst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
með upplýsingum um nafn og aldur barns, heimili, nafn forráðamanns og símanúmer.
Mótsgjald greiðist inn á reikning 0338-26-000897 kt. 490884-0419. Munið að setja nafn barns sem skýringu og vinsamlegast sendið kvittun á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Kotinu um verslunarmannahelgina.
Kærleikskveðjur,
starfsfólk barnamóts
|