Barnamót verður haldið í
Stykkishólmi samhliða árlegu móti Hvítasunnumanna.
Við erum í óða
önn að skipuleggja frábæra dagskrá fyrir börn á aldrinum 4 til12 ára.
Ekki má gleyma yngstu
börnunum því við verðum með Lamba opinn á morgnana (föstudag og sunnudag) frá
10-12 og þar fá 2 til 4 ára börnin kennslu og geta leikið sér.
Skráning á
mótið er hafin og er ein breyting á - við verðum ekki með boli í ár eins og
undanfarin ár. Í staðinn fá öll börn buff og fylgihluti sem tengjast mótinu.
Gjaldið lækkar í 2.000 krónur og þarf að greiða það um leið og börnin eru
skráð. Við munum endurgreiða þeim mismuninn sem eru búnir að greiða meira en
2.000 pr. barn.
Skráning á
barnamót:
Sendið tölvupóst
á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
með upplýsingum um nafn og aldur barnsins,
heimili, nafn forráðamanns og símanúmer.
Greiða þarf fullt gjald
2.000.- fyrir 15. júlí til að tryggja barninu buff og þá fylgihluti sem verða á
mótinu. Eftir 15. júlí hækkar gjaldið í 3.000.-
Mótsgjald
greiðist inná á reikning 0338-26-000897 kt. 490884-0419.
Munið að setja
nafn barns sem skýringu, vinsamlegast sendið kvittun á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Við hlökkum
afskaplega mikið til þessa móts og biðjum ykkur Guðs blessunar,
starfsfólk barnamóts
Hér fyrir neðan er hægt að
sjá dagskrá mótsins og minnisvers: